Síðubraut lokað vegna framkvæmda í Móahverfi

Framkvæmdir hefjast við Síðubraut miðvikudaginn 15. nóvember í tengslum við hið nýja Móahverfi og verður henni lokað milli Jaðarsíðu og Austursíðu sem sjá má á meðfylgjandi mynd.

Fjarlægja þarf malbik af hluta götunnar og byggja nýtt hringtorg. Það á eftir að skýrast hversu lengi lokun Síðubrautar mun vara. Allri umferð vinnuvéla og þungra ökutækja verður beint um stofn- og tengibrautir til að lágmarka ónæði í íbúðahverfum.

Hægt er að skrá sig á póstlista hér til að fá fréttir af framkvæmdum í Móahverfi.

Hverfið er í norðvesturhluta Akureyrar þar sem gert er ráð fyrir að byggðar verði allt að 1.100 íbúðir á næstu árum.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan