Samþykkt skipulagstillaga

Breyting á deiliskipulagi Akureyrarflugvallar.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 4. desember 2018 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Akureyrarflugvöll.
Breytingin felur í sér að girðing við suðurenda flugbrautar er framlengd til austur út að Eyjafjarðará sem felur í sér að lega reiðleiðar/gönguleiðar er sveigð til austurs yfir Eyjarfjarðará til samræmis við gildandi aðalskipulag sveitarfélagsins.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.

 

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 17. janúar 2019,

Margrét M. Róbertsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála.

B deild - Útgáfud.: 21. janúar 2019

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan