Rekstrarsamningur við Nökkva endurnýjaður

Frá undirritun samningsins. Frá vinstri: Heimir Örn Árnason forseti bæjarstjórnar, Ásthildur Sturlud…
Frá undirritun samningsins. Frá vinstri: Heimir Örn Árnason forseti bæjarstjórnar, Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri, Tryggvi Jóhann Heimisson formaður Nökkva og Kári Ellertsson stjórnarmaður Nökkva.

Í gær var undirritaður nýr rekstrarsamningur milli Akureyrarbæjar og Siglingaklúbbsins Nökkva sem byggir á þeim samningi sem aðilar gerðu með sér í september á síðasta ári þegar nýtt aðstöðuhús á félagssvæði Nökkva var tekið í notkun.

Samkvæmt samningnum, sem gildir út árið 2026, skal Siglingaklúbburinn Nökkvi sjá um rekstur og umsjón félagssvæðisins, þ.m.t. aðstöðumannvirki, ásamt íþróttatengdri starfsemi.

Undirritaður samningur 31. október 2022.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan