Ræddu mannréttindi við bæjarstjóra

Í morgun litu við hjá bæjarstjóra fjórir strákar sem eru nemendur í Oddeyrarskóla. Þeir heita Maciej Marek Mazut, Óðinn Andri Andersen, Örn Sigurvinsson og Eduard Lauur og eru í 8.-10. bekk. Tilgangurinn var að ræða við Ásthildi bæjarstjóra um börn og mannréttindi en þeir eru í þemavinnu í skólanum þar sem þetta er til umfjöllunar.

Farið var yfir mikilvægi Mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna og hvers virði hann er fyrir börn um heim allan en því miður er sáttmálinn misjafnlega mikið virtur. Strákarnir voru með póstkort með sér sem eru hluti af alþjóðlegri herferð Amnesty International, þar sem þrýst er á stjórnvöld víða um heim að virða mannréttindi.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan