Peningaverðlaun í ritlistakeppni

Frá ritlistasmiðjunni með Bryndísi Björgvinsdóttur rithöfundi.
Frá ritlistasmiðjunni með Bryndísi Björgvinsdóttur rithöfundi.

Ritlistasmiðja var haldin í VMA fyrir skemmstu og var afar vel sótt. Leiðbeinendur voru rithöfundarnir Bryndís Björgvins og Stefán Máni.

Í framhaldi af ritlistasmiðjunni er efnt til ritlistakeppni sem er opin öllum ungmennum á aldrinum 16-25 ára. Það er alls ekkert skilyrði að hafa tekið þátt í ritlistasmiðjunni þótt vonir standi til að þátttaka þar komi að góðum notum.

Í ritlistakeppninni verða veitt peningaverðlaun fyrir efstu þrjú sætin. Engar hömlur eru settar á texta, hvorki varðandi efnistök né lengd. Þeir þurfa þó að sjálfsögðu að vera á íslensku. Skilafrestur á innsendum verkum er til og með 16. nóvember sem er dagur íslenskrar tungu, fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar. Þátttakendur senda skrif sín á netfangið ungskald@akureyri.is.

Tilkynnt verður um sigurvegara í keppninni við sérstaka athöfn á Amtsbókasafninu á Akureyri fimmtudaginn 5. desember nk. Þangað eru allir velkomnir til að hlusta og njóta.

Markmiðið með verkefninu er að efla ritlist og skapandi hugsun hjá ungu fólki á aldrinum 16-25 ára því að kostnaðarlausu. Verkefnið Ungskáld hefur verið við lýði á Akureyri í nokkur ár og er hið eina sinnar tegundar á landinu. Að verkefninu standa Akureyrarstofa, Verkmenntaskólinn á Akureyri, Menntaskólinn á Akureyri, Ungmennahúsið í Rósenborg og Amtbókasafnið.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan