Opnanir í Listasafninu á laugardaginn

Eitt af verkum Helgu Sigríðar Valdemarsdóttur á sýningunni Kyrrð.
Eitt af verkum Helgu Sigríðar Valdemarsdóttur á sýningunni Kyrrð.

Laugardaginn 24. febrúar kl. 15 verða tvær sýningar opnaðar í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi: Sköpun bernskunnar 2018, samsýning listamanna, skólabarna og Leikfangasafnsins á Akureyri, og sýning Helgu Sigríðar Valdemarsdóttur, Kyrrð.

Þetta er fimmta sýningin undir heitinu Sköpun bernskunnar. Hún er sett upp til þess að örva skapandi starf og hugsun skólabarna á aldrinum tveggja til sextán ára. Þátttakendur hverju sinni eru börn, starfandi listamenn og Leikfangasýningin á Akureyri. Sköpun bernskunnar er því samvinnuverkefni í stöðugri þróun og er hver og ein sýning sjálfstæð og sérstök. Sýningin hefur vakið verðskuldaða athygli og var valin til þátttöku í Barnamenningarhátíð Mennta- og menningarmálaráðuneytisins 2017. Þemað að þessu sinni er tröll í víðum skilningi sem vísar í þjóðsögur Íslendinga. Á sýningunni mætast þátttakendur og eiga listrænt samtal við sýningargesti.

Þátttakendur að þessu sinni eru Georg Óskar, Ninna Þórarinsdóttir, Sigga Björg Sigurðardóttir, Leikfangasafnið á Akureyri, Grímseyjarskóli, Oddeyrarskóli, Iðavöllur og Krógaból. Boðið verður upp á listasmiðju með Ninnu Þórarinsdóttur sunnudaginn 25. febrúar kl. 11-12 og fjölskylduleiðsögn laugardagana 10. mars og 14. apríl. Aðgangur ókeypis.

Helga Sigríður Valdemarsdóttir (f. 1975) útskrifaðist af Mynd- og handíðabraut VMA 1997 og lauk diplómanámi í myndlist frá Myndlistaskólanum á Akureyri 2003. Á sýningunni Kyrrð notar hún ljósmyndir, málverk og innsetningu til að fjalla um kyrrðarrými konunnar.

Í texta um sýninguna segir: Í umbreytingum samtímans og ati hversdagsins leitar manneskjan að huglægum rýmum til að öðlast innri ró. Slík rými eru víða og margvísleg: úti í náttúrunni, taktföst sundtök, gönguferð með hundinn, jógastaða, góð vinasambönd. Þar sem kyrrð finnst, stilla vinnst. Þörfin fyrir, og leitin að, jafnvægi og kyrrð er ævagömul. Konur hafa til að mynda lengi fundið sér kyrrðarrými með ástundun handverks. Sitjandi prjónandi fá þær hvíld frá amstri, frið fyrir áreiti, þær eru uppteknar og löglega afsakaðar, fá að vera með sjálfum sér, í eigin tómi, í rými sem þær þurfa að taka sér, hafa skapað sér.

Boðið verður upp á heilun í tengslum við sýninguna laugardagana 3. og 10. mars og sunnudagana 4. og 11. mars kl. 14-17 og fjölskylduleiðsögn laugardagana 10. mars og 14. apríl. Aðgangur ókeypis.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan