Óheimilt að hrúga snjó á götur

Athygli bæjarbúa er vakin á því að óheimilt er að hrúga upp snjó af einkalóðum í botnlanga gatna, á gangstéttir eða aðra hluta gatna þar sem vegfarendur eiga leið um. 

Rétt þykir að benda á þetta í því fannfergi sem nú er í bænum. Hér er einungis átt við að ekki er leyfilegt að flytja snjó af einkalóðum á gangstéttir eða út á götu i miklu magni. Þetta er fyrst og fremst gert til að tryggja öryggi fótgangandi vegfarenda, ekki síst barna.

Hægt er að losa snjó á skilgreindum snjólosunarsvæðum í bæjarlandinu. Búið er að kynna snjólosunarsvæðin fyrir snjómokstursverktökum í bænum.

Á kortasjá Akureyrarbæjar undir vetrarþjónustu er kort af snjólosunarsvæðum á Akureyri. Undir vetrarþjónustu er einnig hægt að skoða hvar í bænum eru sandkistur, hver er forgangur í snjómokstri á götum og stígum sem og hálkuvörnum.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan