Nýtum okkur rafræna þjónustu

Mynd: Kara Connect
Mynd: Kara Connect

Íbúar eru hvattir til að nota rafrænar þjónustu- og samskiptaleiðir Akureyrarbæjar eins og kostur er til þess að draga úr smithættu. 

Vegna vaxandi útbreiðslu Covid-19 er mikilvægt að draga úr umferð um skrifstofur bæjarins og standa þannig vörð um nauðsynlega þjónustu. 

Margar rafrænar leiðir í boði

Þeim sem vilja og þurfa að hafa samband við sveitarfélagið er bent á nokkrar aðrar leiðir: 

  • Rafræn samskipti í tölvupósti. Best er að senda póst á netfangið akureyri@akureyri.is. 
  • Sérstakt form fyrir fyrirspurnir og ábendingar á heimasíðunni. 
  • Hafa samband í síma 460-1000. Hér er síma- og netfangaskrá starfsmanna
  • Netspjall hér á heimasíðunni (guli hringurinn neðst í hægra horninu
  • Í þjónustugáttinni er hægt að sækja um ýmsa þjónustu, leyfi, skoða reikninga og fylgjast með afgreiðslu sinna mála. Nauðsynlegt er að skrá sig inn með íslykli eða rafrænum skilríkjum. 

Starfsfólk leggur mikla áherslu á að leysa úr rafrænum erindum eins fljótt og auðið er. 

Vilt þú fá klippikort í pósti?

Margir hafa komið í Ráðhúsið að undanförnu til þess að sækja klippikort á gámasvæðið. Í ljósi aðstæðna og til þess að fækka heimsóknum vill Akureyrarbær bjóða íbúum að fá klippikortin send í pósti. Þeir sem það kjósa mega senda tölvupóst á thjonustuver@akureyri.is eða hringja í síma 460-1000.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan