Myndasögur í Listasafninu

Elías Rúni ásamt þátttakendum. Ljósmynd: Almar Alfreðsson.
Elías Rúni ásamt þátttakendum. Ljósmynd: Almar Alfreðsson.

Um síðustu helgi fór fram fyrsta listvinnustofa verkefnisins Allt til enda - Listvinnustofur barna árið 2023 í Listasafninu á Akureyri. Þá bauð Elías Rúni, myndasöguhöfundur, myndlýsir og grafískur hönnuður, börnum í 3.-6. bekk að gera tilraunir með myndasöguformið og kynnast ólíkum leiðum til að segja sögur í myndum með áherslu á skapandi form og frásögn. Innblástur var sóttur í hversdagsleikann og sagna leitað í minningum og því sem er efst á baugi í samfélaginu.

Börnin tóku virkan þátt í öllu ferlinu, allt frá því að leita sér innblásturs, skapa verkin í samstarfi við Elías Rúna og sýna afraksturinn á sérstakri sýningu sem Hlynur Hallsson safnstjóri opnaði í safnfræðslurými Listasafnsins. Sýningin stendur til 12. nóvember nk.

Verkefnið Allt til enda - Listvinnustofur barna hófst árið 2021 en þar fá börn á grunnskólaaldri tækifæri til að láta ljós sitt skína á sinni eigin sýningu sem þau undirbúa frá upphafi til enda. Listvinnustofan með Elíasi Rúna er sjöunda listvinnustofan í verkefninu. Verkefnið í ár er styrkt af Safnasjóði og Akureyrarbæ. Verkefnastjóri er Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi.

Næsta listvinnustofa verður 18.-19. nóvember undir leiðsögn Friðriks Steins Friðrikssonar, vöru- og upplifunarhönnuðar. Sú smiðja verður fyrir 7.-10. bekk og nánar auglýst síðar.

Þátttakendur listvinnustofunnar:

  • Axel Tumi Arnarsson
  • Bergrós Bára Ryan
  • Elma Lind Halldórsdóttir
  • Hildur Ágústsdóttir
  • Jakob Ísak Sveinsson
  • Mía Almarsdóttir
  • Michael Hákon Mwesigwa
  • Óðinn Hrafn Klein
  • Stefán Örn Friðriksson
  • Sölvi Mar Snorrason

Smellið á myndirnar að neðan til að sjá stærri útgáfur og fletta á milli þeirra.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan