Munið klippikortin

Fasteignaeigendur eru minntir á klippikortin sem fást afhent í þjónustuveri Akureyrarkaupstaðar að Geislagötu 9.

Hver fasteignaeigandi getur fengið afhent eitt kort árlega gegn framvísun skilríkja og veitir það aðgang að gámasvæðinu við Réttarhvamm og losunar á allt að 4 m³ af gjaldskyldum heimilisúrgangi. Leigjendur íbúðarhúsnæðis verða að nálgast kort hjá leigusala eða kaupa sér kort í þjónustuverinu. Eldri kort má nýta áfram þar sem þau hafa engan fyrningadag og hægt er að nálgast ný kort hvenær sem er á árinu 2019.

Það borgar sig að flokka þann úrgang sem til fellur og skila á réttan stað. Með því verndum við umhverfið og stöndum að málum á sem hagkvæmastan hátt. Megnið af því sem skilað er inn á gámasvæðið er endurnýtt með einum eða öðrum hætti og breytist því úr úrgangi í verðmæti. Fyrir skil á slíkum úrgangi þarf ekki að greiða. En sumt þarfnast kostnaðarsamrar meðhöndlunar og í þeim tilvikum þarf að greiða.

Það er mjög mikilvægt að flokka rétt því þannig komum við í veg fyrir sóun verðmæta og tryggjum að fólk greiði aðeins þegar við á.

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan