Munið að sækja um fyrir Barnamenningarhátíð

Listasmiðja fyrir börn í Listasafninu á Akureyri. Mynd: Almar Alfreðsson.
Listasmiðja fyrir börn í Listasafninu á Akureyri. Mynd: Almar Alfreðsson.

Frestur til að sækja um styrki vegna verkefna og viðburða sem tengjast Barnamenningarhátíð á Akureyri 2022 rennur út á miðnætti næsta sunnudag, 16. janúar.

Hátíðin er nú haldin í fimmta sinn og eru leik- og grunnskólakennarar sérstaklega hvattir til að sækja um styrki til verkefna á vegum skólanna.

Sótt er um rafrænt í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar á akureyri.is. Athugið að einungis er hægt að opna umsóknina með íslykli eða rafrænum skilríkjum. Mikilvægt er að umsóknaraðilar kynni sér vel verklagsreglur um stuðning Akureyrarbæjar við viðburði á Barnamenningarhátíð á Akureyri sem er að finna HÉR.

Nánari upplýsingar um Barnamenningarhátíð á Akureyri 2022 á barnamenning.is.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan