Minni umferð um Þingvallastræti

Mælingar á umferð um helstu götur og gatnamót á Akureyri sýna að umferðin um Þingvallastræti hefur smám saman minnkað eftir að nýjar og mikilvægar tengibrautir í bæinn voru opnaðar.

Á meðfylgjandi línuriti sést hvernig dregið hefur úr umferðinni um Þingvallastræti fyrst þegar Borgarbraut var opnuð árið 2000, síðan Dalsbrautin frá Þingvallastræti að Borgarbraut, þá Miðhúsabraut frá Þingvallastræti að Kjarnagötu og Dalsbraut, og loks Dalsbrautin frá Þingvallastræti að Miðhúsabraut.

Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri segir að vissulega sé þetta fagnaðarefni og rétt að dreifa bílaumferð jafnar um stærstu göturnar.

„Það eru ýmsir möguleikar í gatnakerfi bæjarins sem geta með réttri stjórnun og lagningu eða breikkun nýrra gatna gert okkur kleift að minnka álag á gömlum götum, jafnvel í miðjum íbúðahverfum. Ég held að þetta sé ágætt dæmi um það þegar vel tekst til. Tölurnar sýna a.m.k. svart á hvítu að dregið hefur umtalsvert úr umferð um Þingvallastrætið eftir að aðrar akstursleiðir um bæjarlandið voru opnaðar," segir Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á Akureyri.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan