Mikill viðsnúningur til hins betra í rekstri Akureyrarbæjar

Myndina tók María Helena Tryggvadóttir á Akureyri í gær.
Myndina tók María Helena Tryggvadóttir á Akureyri í gær.

Ársreikningar Akureyrarbæjar fyrir árið 2021 voru lagðir fram í bæjarráði í dag. Rekstur samstæðu Akureyrarbæjar gekk vel, var betri en áætlanir gerðu ráð fyrir, og var Akureyrarbær rekinn með 752 millj. kr. afgangi. Sjóðstreymið var mun betra en árið áður.

Samstæða Akureyrarbæjar, þ.e. Aðalsjóður, Fasteignir Akureyrarbæjar, Eignasjóður gatna og Umhverfismiðstöð ásamt fyrirtækjum í eigu bæjarins, s.s. Félagslegar íbúðir, Strætisvagnar Akureyrar, Hlíðarfjall, Hafnasamlag Norðurlands, Norðurorka og Öldrunarheimilin, var rekin með 752 millj. kr. afgangi. Rekstur samstæðu Akureyrarbæjar gekk mun betur en áætlanir gerðu ráð fyrir. Rekstrarniðurstaða ársins var jákvæð um 752 millj. kr. en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 1.184 millj. kr. neikvæðri niðurstöðu. Rekstrarniðurstaða samstæðunnar fyrir fjármagnsliði og tekjuskatt var jákvæð um 2.460 millj. kr. en áætlun hafði gert ráð fyrir 482 millj. kr. rekstrarafgangi. Meginskýringar á bættri afkomu eru hærri skatttekjur af útsvari og minni aukning lífeyrisskuldbindinga en gert var ráð fyrir.

Samkvæmt yfirliti um sjóðstreymi nam veltufé frá rekstri 3.906 millj. kr. sem var 1.736 millj. kr. hærra en áætlað var. Sambærileg fjárhæð árið áður var 2.312 millj. kr. Handbært fé frá rekstri nam 2.748 millj. kr. Fjárfestingahreyfingar námu samtals nettó 3.355 millj. kr. en fjármögnunarhreyfingar námu samtals nettó 1.310 millj. kr. Afborgun langtímalána nam 1.145 millj. kr. en ný langtímalán voru 2.000 millj. kr. Hækkun á handbæru fé á árinu nam 703 millj. kr. og var handbært fé samstæðunnar í árslok 3.215 millj. kr. Veltufé frá rekstri árið 2021 í hlutfalli við tekjur nam 13,74% í samstæðunni og 9,43% í A-hluta. Árið áður voru hlutföllin 8,37% í samstæðunni og 4,47% í A-hluta.

Heildarlaunagreiðslur með launatengdum gjöldum en án hækkunar lífeyrisskuldbindinga hjá samstæðunni voru 15.702. millj. kr. Fjöldi stöðugilda var að meðaltali 1.495 sem er fækkun um 136 stöðugildi frá árinu áður. Fækkun starfsmanna á milli ára skýrist af því að Akureyrarbær rak Öldrunarheimilin í 4 mánuði á árinu 2021 í stað alls ársins árið áður. Laun og launatengd gjöld samstæðunnar í hlutfalli við rekstrartekjur hennar voru 56,2%. Annar rekstrarkostnaður var 27,9% af rekstrartekjum. Skatttekjur og framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga voru 921 þús. kr. á hvern íbúa en tekjur voru samtals 1.448 þús. kr. á hvern íbúa. Árið 2020 voru skatttekjurnar 876 þús. kr. á hvern íbúa og heildartekjurnar 1.437 þús. kr. á hvern íbúa.

Niðurstaða rekstrar A-hluta var jákvæð um 318 millj. kr. en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir neikvæðri niðurstöðu um 1.447 millj. kr.

Samkvæmt efnahagsreikningi voru eignir sveitarfélagsins í árslok 2021 bókfærðar á 62.775 millj. kr. en þar af voru veltufjármunir 6.620 millj. kr. Skuldir sveitarfélagsins með lífeyrisskuldbindingum námu samkvæmt efnahagsreikningi 36.137 millj. kr. en þar af voru skammtímaskuldir 4.935 millj. kr.

Fjárhagur Akureyrarbæjar er traustur og nam skuldaviðmið samstæðunnar í árslok 86% samkvæmt reglum Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga en það var 85% árið áður. Skuldaviðmið í A-hluta var 61% í árslok en var 62% árið áður.

Veltufjárhlutfallið var 1,34 í árslok 2021 en var 1,23 árið áður. Bókfært eigið fé nam 26.637 millj. kr. í árslok en var 25.063 millj. kr. í árslok árið áður. Eiginfjárhlutfall var 42% af heildarfjármagni eins og árið áður.

Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og verður hann til umfjöllunar í bæjarstjórn Akureyrar 12. og 26. apríl nk.

Ársreikningurinn er settur fram samkvæmt lögum um reikningsskil sveitarfélaga. Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða að meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan