Miðbærinn, Skipagata 12 – Tillaga að deiliskipulagsbreytingu

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að nýtingarhlutfall er hækkað, byggingarreitur er stækkaður til vesturs og norðurs og á 2. og 3ju hæð verði heimilt að byggja svalir 1,75 m út fyrir byggingarreit til austurs yfir Skipagötu.
Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð er til sýnis á 1. hæð í Ráðhúsi Akureyrarkaupstaðar, frá 21. ágúst til 2. október 2019, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir.

Einnig er hægt að skoða tillöguupprátt hérog greinargerðina hér.

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 2. október 2019 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagssviðs Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagssvid@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.

21. ágúst 2019
Sviðsstjóri skipulagssviðs

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan