Meira samstarf samfélaginu og einstaklingum til hagsbóta

Þau sem voru með erindi á þinginu. Alfa Aradóttir, Hermína Gunnþórsdóttir, Kjartan Ólafsson, Vilborg…
Þau sem voru með erindi á þinginu. Alfa Aradóttir, Hermína Gunnþórsdóttir, Kjartan Ólafsson, Vilborg Ívarsdóttir, Andrea Hjálmsdóttir,Ed Smith, Linda Caldwell, Jakob F Þorsteinsson, Vanda Sigurgeirsdóttir og Árni Guðmundsson.

Nýverið fór fram í Rósenborg málþing um frítíma, ungt fólk og forvarnir.  Að málþinginu stóðu forvarnar- og frístundadeild Akureyrarbæjar og Menntavísindasvið Háskóla Íslands, tómstundadeild. Forvarnir og frístundir tengjast órjúfanlegum böndum en skynsamleg, uppbyggileg nýting á tíma og meðvitund um líðan í frítíma hefur reynst árangursríkt í forvarnastarfi með ungu fólki.  Mikil starfsþróun hefur átt sér stað í félagsstarfi á vegum frístundadeildar Akureyrar og hefur verið unnið með starfsaðferð sem kallast Time Wise. Sú starfsaðferð gengur markvisst út á sjálfsstyrkingu, að vinna með leiða og áhugaleysi, skoða tímanotkun og uppbyggilega nýtingu á tíma. Time Wise starfsaðferðin er þróuð af Lindu Caldwell prófessor við Penn State í Bandaríkjunum og var upphaflega unnin til að vinna með áhættuhegðun og neyslu ungs fólks. Time Wise starfsaðferðin hefur verið rannsökuð og rýnd af Ed Smith hjá félagsvísindarannsóknadeild Penn State sem kom á málþingið ásamt Lindu Pálsdóttur til að skoða og ræða hvernig aðferðin hefur verið aðlöguð að frítímastarfi á Akureyri.

Á málþinginu fjölluðu fræðimenn og fagfólk um stöðu ungs fólks, tómstundir þeirra og um rannsóknir sem styðja við forvarna- og frítímastarf í sveitarfélaginu. Fulltrúar starfsfólks félagsmiðstöðvanna, Vilborg Hjörný Ívarsdóttir og Guðmundur Óli Gunnarsson miðluðu af reynslu sinni af notkun Time Wise aðferðafræðinnar í starfi. Jakob F. Þorsteinsson aðjunkt á menntavísindasvið HÍ ræddi um hlutverk menntunar, og hvort ekki megi standa við þá fullyrðingu að menntakerfi séu fleiri en eitt og þá hvort hið óformlega menntakerfi sé nægjanlega viðurkennt. Margt hefur verið að breytast þegar kemur að skilningi á námi og hvernig það fer fram. Meðal annars komu fram vangaveltur um hlutverk hefðbundins skóla og hvort raunhæft sé að skólinn standi undir þeim kröfum sem til hans eru gerðar og hvort skipulagt frítímastarf geti unnið betur með skólakerfinu.

Vanda Sigurgeirsdóttir, aðjúnkt á menntavísindssviði ræddi um tómstundamennt og mikilvægi þess að unnið sé markvisst ef ætlunin er að ná árangri með einstaklinga í frítímanum.  Afar mikilvægt er að rannsóknir séu gerðar reglubundið til að tryggja árangur og gæði starfsins. Árni Guðmundsson, sérfræðingur í æskulýðsmálum,ræddi um að líklega hefur það aldrei verið jafn flókið að alast upp og það er nú í dag. Því þurfi ungt fólk mikinn stuðning og leiðsögn. Andrea Hjálmsdóttir frá Háskólanum á Akureyri velti í máli sínu upp stöðu jafnréttismála en margt bendir til að þó svo margt hafi áunnist sé stöðnun hvað varðar viðhorf ungs fólks til kynjajafnréttis og þörf sé á breyttri aðferð í jafnréttisbaráttunni. Hermína Gunnþórsdóttir sagði frá rannsóknum á stöðu ungs fólks af erlendum uppruna og þar er svo sannarlega verk að vinna og margt sem hægt er að bæta t.d. með tungumálakennslu. Kjartan Ólafsson lektor frá Háskólanum á Akureyri fjallaði um netnotkun ungs fólks og lék sér m.a að því að bera saman bóklestur hér áður fyrr.


Niðurstaða málþingsins er að mörg áhugaverð tækifæri felast í meira samstarfi hins formlega námsvettvangs og hins óformlega, samfélaginu og einstaklingum til hagsbóta. Með skipulögðu og innihaldsríku starfi er forvarnagildið gríðarmikið.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan