Með kveðju frá bæjarstjóra

Hjarta í götuvita. Mynd: Hlynur Hallsson.
Hjarta í götuvita. Mynd: Hlynur Hallsson.

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, skrifaði færslu á Facebook í morgun þar sem hún þakkar starfsfólki bæjarins vel unnin störf og hvetur til samstöðu í baráttunni gegn Covid-19.

Ég á ekki nógu mörg orð til þess að hrósa frábæru stafsfólki Akureyrarbæjar þessa dagana. Það er sama hvert litið er. Sjúkrafluningamenn sem leggja sig alla fram við að bjarga lífi fólks í fyrsta viðbragði. Starfsfólk leik- og grunnskóla hefur aðlagað starfsemi sína á undraskömmum tíma að breyttum aðstæðum. Það er störfum þeirra að þakka að fólkið sem stendur í framlínunni í baráttunni við veiruna skæðu getur sinnt störfum sínum af fullum þunga.

Allt starfsfólkið í velferðarþjónustunni sem sinnir öldruðum, fötluðum og öllum þeim sem minna mega sín við algjörlega nýjar aðstæður á líka endalausar þakkir skilið. Þar hefur starfseminni verið breytt þannig að fyllsta öryggis sé gætt og reynt að tryggja að allt gangi snuðrulaust fyrir sig við erfið skilyrði.

Við eigum gott fólk og samstaðan er einstök. Höldum henni. Hún er svo mikilvæg á erfiðum tímum.

Hlýjar kveðjur,
Ásthildur Sturludóttir

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan