Leikskóli og hjúkrunarheimili við Vestursíðu - Drög að tillögu að breytingu á deiliskipulagi Síðuskóla

Nú eru í kynningu drög að tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Síðuskóla í samræmi við 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagstillagan gerir ráð fyrir stækkun skipulagssvæðisins til vesturs að Vestursíðu, afmörkun lóðar fyrir hjúkrunarheimili á tveimur hæðum á suðvesturhluta svæðisins og nýjum leikskóla sem tengist Síðuskóla á norðvesturhluta þess.

Skipulagstillöguna má nálgast hér .

Tillagan verður jafnframt aðgengileg hjá þjónustu- og skipulagssviði í Ráðhúsi Akureyrarbæjar frá 5.-26. október nk. Hægt er að skila inn ábendingum um tillöguna á netfangið skipulag@akureyri.is eða bréfleiðis til Þjónustu- og skipulagssviðs, Ráðhúsi, Geislagötu 9, 600 Akureyri, til 26. október 2022.

Athugasemdir teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn þeirra sem senda inn athugasemdir koma fram í fundargerðum skipulagsráðs sem birtar eru á heimasíðu Akureyrarbæjar. Persónuupplýsingar sem fylgja athugasemdum við skipulag, s.s. kennitala, nafn og netfang eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hjá Akureyrarbæ hér

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan