Leikskólabörn vilja taka að sér fjöru í Bótinni

Nemendur og kennarar úr Hulduheimum Koti áttu góðan fund með bæjarstjóra í morgun.
Nemendur og kennarar úr Hulduheimum Koti áttu góðan fund með bæjarstjóra í morgun.

Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri fékk í morgun skemmtilega heimsókn frá börnum og kennurum í leikskólanum Hulduheimum Koti. Þau færðu henni formlegt erindi, undirritað af þeim öllum, með ósk um að taka að sér litla sandfjöru í Bótinni. 

Fjaran er hluti af svæði sem kallað var Kamburinn og biðja börnin einnig um að fá að gefa fjörunni nafnið Kambfjara og að hún verði þannig merkt inn á kort Akureyrar. 

Börnin hafa í hyggju að vinna með Bláa hernum og vilja sjá um að halda fjörunni hreinni. 

Ásthildur spjallaði við börnin og tók á móti erindinu sem verður í framhaldinu tekið fyrir í viðeigandi ráði. 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan