Kvennafrí 2018

Konur eru hvattar til að leggja niður vinnu kl. 14.55 miðvikudaginn 24. október og fylkja liði á samstöðufund á Ráðhústorgi kl. 15.15 undir kjörorðinu: Breytum ekki konum, breytum samfélaginu!

Samkvæmt nýjustu tölum Hagstofu Íslands um launamun kynjanna eru meðalatvinnutekjur kvenna 74% af meðalatvinnutekjum karla. Konur eru því með 26% lægri atvinnutekjur að meðaltali. Samkvæmt því hafa konur unnið fyrir launum sínum eftir 5 klukkustundir og 55 mínútur miðað við fullan vinnudag frá kl. 9–17. Daglegum vinnuskyldum kvenna er því lokið kl. 14.55.

Á Akureyri verður samstöðufundur á Ráðhústorgi kl. 15.15.

  • Anna Soffía Víkingsdóttir setur fundinn.
  • Konur úr heimabyggð flytja ávörp: Þórhalla Þórhallsdóttir, Arnbjörg Jónsdóttir, Serena Pedrana og Berglind Ósk Guðmundsdóttir.
  • Kvennakór Akureyrar flytur tvö lög.
  • Yfirlýsing samstöðufunda kvenna lesin og fundi slitið

Heimasíða viðburðarins.

Viðburðurinn á Facebook.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan