Íþróttamenn Akureyrar 2018

Íþróttafólkið sem heiðrað var í gær. Hulda B. Waage og Viktor Samúelsson fremst fyrir miðju.
Íþróttafólkið sem heiðrað var í gær. Hulda B. Waage og Viktor Samúelsson fremst fyrir miðju.

Kjöri íþróttamanns Akureyrar 2018 var lýst við hátíðlega athöfn í Menningarhúsinu Hofi í gærkvöldi. Þetta var í 40. skipti sem íþróttamaður Akureyrar er heiðraður.

Alls hlutu 13 íþróttakonur og 15 íþróttakarlar úr röðum aðildarfélaga ÍBA atkvæði til kjörsins. Á athöfninni veitti frístundaráð Akureyrarbæjar viðurkenningar fyrir Íslandsmeistaratitla og sérstakar heiðursviðurkenningar auk þess sem Afrekssjóður Akureyrarbæjar veitti afreksstyrki og aðildarfélögum styrki fyrir landsliðsmenn.

Íþróttakona Akureyrar 2018 var kjörin Hulda B. Waage úr Kraftlyftingafélagi Akureyrar. Á árinu 2018 varð Hulda Íslands- og bikarmeistari í kraftlyftingum og bekkpress auk þess að setja fjölmörg Íslandsmet. Hulda var stigahæsta kraftlyftingarkona árisns 2018 og stigahæsta kona ársins í samanlögðu, bekkpressu og hnébeygju. Hulda, sem var valinn Kraflyftingarkona ársins 2018 af ÍSÍ, er stigahæsta kraftlyftingarkona Íslands frá upphafi. Árið 2018 var Hulda í 12. sæti á lista evrópska Kraftlyfingarsambandsins og 19. sæti í -84 kg flokki á á lista Alþjóðlega Kraftlyftingarsambandsins. Hulda lenti í 8. sæti í -84 kg flokki á Evrópumótinu í kraftlyftingum og 4. sæti í -84 kg flokki á Western European Championship í kraftlyftingum 2018. Á árinu 2018 náði Hulda mest að lyfta 230 kg í hnébeygju. 147,5 kg í bekkpressu, 180 kg í réttstöðulyftu og 550 kg í samanlögðu. Í 2. sæti varð Silvía Rán Björgvinsdóttir íshokkíkona úr Skautafélagi Akureyrar og í 3. sæti varð Martha Hermannsdóttir handknattleikskona úr KA/Þór.

Íþróttakarl Akureyrar 2018 var kjörinn Viktor Samúelsson úr Kraftlyftingafélagi Akureyrar. Á árinu 2018 varð Viktor Íslandsmeistari í kraftlyftingum og bekkpressu auk þess að setja fjölmörg Íslandsmet. Viktor var stigahæsti karl ársins í samanlögðu, bekkpressu og hnébeygju, stigahæsti kraftlyftingarmaður ársins 2018 og er um leið stigahæsti kraftlyftingarmaður Íslands frá upphafi. Viktor lenti í 4. sæti í -120 kg flokki á Evrópumótinu í kraftlyftingum 2018 og 3. sæti í -120 kg flokki á Western European Championship í kraftlyftingum. Á heimsmeistaramótinu í kraftlyftingum lenti Viktor í 8. sæti í -120 kg flokki. Árið 2018 var Viktor í 4. sæti á lista evrópska kraftlyftingarsambandsins og í 8. sæti á lista Alþjóplega Kraftlyftingarsambandsins í -120 kg flokki. Á árinu 2018 náði Viktor mest að lyfta 387,5 kg í hnébeygju. 307,5 kg í bekkpressu, 322,5 kg í réttstöðulyftu og 1010 kg í samanlögðu. Í 2. sæti varð Filip Szewczyk blakmaður úr KA og í 3. sæti varð Alexander Hinriksson júdómaður úr KA.

Heiðursviðurkenningar frístundaráðs hlutu þau Árni Óðinsson fv. formaður Þórs og Hrefna G. Torfadóttir fv. formaður KA, bæði fyrir mikið og óeigingjarn starf í þágu íþrótta- og félagsmála á Akureyri.

Frístundaráð veitti viðurkenningar til 15 aðildarfélaga vegna 190 Íslandsmeistara á síðasta ári og Afrekssjóður veitti 16 einstaklingum afreksstyrki fyrir samtals rúmar 4 milljónir og 11 aðildarfélögum 1 milljón í styrki vegna 108 landsliðsmanna árið 2018.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan