- Þjónusta
- Menntun
- Samgöngur og slökkvilið
- Umhverfismál
- Skipulag og byggingarmál
- Velferð og fjölskyldan
- Stjórnkerfi
- Bæjarstjórn
- Stjórnsýsla
- Akureyri
- Útboð
- Fjármál og tölfræði
- Fyrir fjölmiðla
- Sveitarstjórnarkosningar 2022
- Mannlíf
- Þjónustugátt
Mikilvægt er að öllum umsóknum um leikskóla og umsóknum um flutning milli leikskóla verði skilað inn fyrir 1. febrúar n.k. Sótt er um á rafrænu formi í þjónustugátt Akureyrarbæjar.
Aðalinnritun í leikskóla á Akureyri fyrir haustið 2023 fer fram í mars-og aprílmánuði n.k. Þá fá foreldrar nýrra nemenda send innritunarbréf frá leikskólunum í tölvupósti.
Innritað er í hvern skóla eftir kennitölum umsækjenda. Þar sem fjöldi umsókna í hvern skóla ræður að stórum hluta aldursamsetningu á deildum verður ekki ljóst fyrr en eftir 15. febrúar hvaða leikskólar koma til með að innrita 12 mánaða gömul börn, fyrir utan Árholt/Tröllaborgir og Hulduheima Kot, sem eingöngu innrita yngstu börn leikskóla.
Gera má ráð fyrir að aðlögun geti hafist síðari hluta ágústmánaðar þ.e. eftir að verðandi grunnskólabörn hætta í leikskólunum. Tímalengd aðlögunartímabilsins fer eftir fjölda barna í aðlögun og því má gera ráð fyrir að aðlögun geti staðið yfir fram í októbermánuð.
Foreldrum er bent á að kynna sér reglur um leikskólaþjónustu.