Hálönd 3. áfangi– Tillaga að deiliskipulagi

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagi 3. áfanga Hálanda í landi Hlíðarenda.
Skipulagssvæðið liggur norðan Hlíðarfjallsvegar, frá bænum Hlíðarenda og upp að núverandi frístundabyggð í Hálöndum. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir götum, göngustígum, leiksvæði og byggingarreitum fyrir 48 frístundahús.
Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 16. maí til 27. júní 2018, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig aðgengileg hér fyrir neðan:

Uppdráttur - tillaga

Greinargerð - tillaga

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 27. júní 2018 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagssviðs Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagssvid@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.

16. maí 2018
Sviðsstjóri skipulagssviðs

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan