Göngu- og hjólaleiðir

Hjólað upp sneiðinginn við nýju Glerárstífluna
Hjólað upp sneiðinginn við nýju Glerárstífluna

Spáin framundan er góð, bæði fyrir helgina og næstu viku, mikil hlýindi og sól og því um að gera að halda áfram að nýta tækifæri til útivistar.

Eins og flestir vita skiptir regluleg hreyfing okkur miklu máli og eru allir sem eiga þess kost hvattir til að hreyfa sig og nýta góða veðrið. Aðstaða til útivistar í nágrenni Akureyrar er einstök og hvetjum við íbúa og gesti til að nýta fjölbreytt útivistarsvæði sér til heilsubótar.

Á vefnum hallóakureyri.is er að finna upplýsingar um helstu gönguleiðir og nú hefur einnig verið unnið yfirlit yfir helstu hjólaleiðir og því er um að gera að kíkja þar inn og fá innblástur fyrir næstu ferð:

Smellið hér til þess að skoða upplýsingar um gönguleiðir

Smellið hér til þess að skoða upplýsingar um hjólaleiðir

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan