Gjaldskylda í bílastæði í miðbænum hefst 4. apríl

Frá og með mánudeginum 4. apríl verður skylt að greiða fyrir notkun bílastæða í miðbæ Akureyrar.

Undanfarnar vikur hafa verið aðlögunartími þar sem fólki hefur gefist kostur á að kynna sér fyrirkomulagið og tileinka sér notkun smáforrita sem hægt er að nota þegar fólk leggur bílum sínum á fyrirfram skilgreindum svæðum í og við miðbæinn. Allar upplýsingar um breytt fyrirkomulag er að finna á vefsvæði Bifreiðastæðasjóðs.

Nokkra athygli hefur vakið að smáforritin sem notuð eru fyrir bílastæði í miðbæ Akureyrar leggja á sérstakt færslugjald þegar bílum er lagt í stæði til viðbótar við það sem rennur í Bifreiðastæðasjóð Akureyrarbæjar. Þessi gjöld eru til að standa undir rekstrarkostnaði fyrirtækjanna sem halda úti þessum smáforritum og eru þau sömu á Akureyri og í Reykjavík og sambærileg við það sem slík fyrirtæki innheimta í öðrum Evrópulöndum.

Í boði er að nota smáforritin Parka og EasyPark en bæði forritin bjóða fólki að velja á milli þess að greiða færslugjald í hvert sinn sem lagt er eða að greiða sérstakt mánaðargjald fyrir notkun á forritunum. Til viðbótar er í hvert skipti greitt stöðugjald Bifreiðastæðasjóðs sem er annaðhvort 100 krónur á klukkutíma eða 200 krónur á klukkutíma eftir svæðum (sjá mynd).

Rétt er að vekja athygli á því að ekki er nauðsynlegt að nota smáforritin, heldur er það aðeins til hægðarauka. Þeir sem það kjósa geta notað stöðumæla sem settir hafa verið upp á þremur stöðum í miðbænum og sjást á meðfylgjandi mynd.

Gjaldskráin er þessi:

  • Bifreiðastæðasjóður: 100-200 kr. á klst. auk þjónustugjalda ef greitt er með smáforriti
  • Stöðumælar: Ekkert færslugjald og ekkert mánaðargjald
  • Parka: Færslugjald 86 kr. eða mánaðargjald 490 kr.
  • EasyPark: Færslugjald 95 kr. eða mánaðargjald 525 kr.

Munurinn á smáforritunum er helstur þessi:

Parka: Þú skráir þig inn þegar þú leggur en ekki er hægt að velja áætlaðan tíma í stæði. Þú þarft að muna að skrá þig út þegar þú ferð, annars greiðir þú til loka gjaldskyldutíma þess dags (kl. 16). Hægt er að fá áminningu um útskráningu eftir 1, 2 eða 3 klst.

EasyPark: Þú skráir þig inn þegar þú leggur og þarft að velja áætlaðan tíma í stæði. Þú getur skráð þig út ef þú ferð áður en áætlaður tími er útrunninn. Hægt er að fá áminningu 5-60 mínútum áður en valinn tími rennur út og hægt er að framlengja í smáforritinu.

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan