Plastiðjan Bjarg Iðjulundur hefur til margra ára haft umhverfisvernd og endurnýtingu að leiðarljósi og hefur til fjölda ára nýtt vaxafganga og kerti sem eru ekki söluhæf, svokallað úrgangsvax til útikertaframleiðslu.
Á hverju ári eru notuð um 20 tonn af vaxi í útikertin, þar af eru um 7 tonn af úrgangsvaxi en restin er innflutt vax. Möguleiki væri að framleiða meira fengi Plastiðjan Bjarg Iðjulundur meira úrgangsvax.
Mikilvægt er að landsmenn séu duglegir að skila inn kertaafgöngum. Hér á Akureyri er hægt er að skila afgöngunum á grendarstöðvarnar, til Endurvinnslunnar Furuvöllum 11, að Réttarhvammi og til Plastiðjunnar Bjargs Iðjulundar að Furuvöllum 1. Tekið er á móti öllum kertastubbum og vaxafgöngum til endurnýtingar. Einnig er tekið á móti sprittkertum en Plastiðjan Bjarg Iðjulundur stendur nú að endurvinnsluátakinu „Gefum jólaljósum lengra líf – endurvinnum álið í sprittkertum" ásamt Samtökum álframleiðenda, Endurvinnslunni, Furu málmendurvinnslu, Gámaþjónustunni, Íslenska gámafélaginu, Málmsteypanni Hellu, Samtökum iðnaðarins og Sorpu.
Tilgangurinn er að fá fjölskyldur til að skila álinu í sprittkertum til endurvinnslu og efla vitund Íslendinga um mikilvægi þess að endurvinna það ál sem fellur til á heimilum og hjá fyrirtækjum. Ætla má að á ári hverju séu notuð um 3 milljónir sprittkerta hér á landi. Til að setja hlutina í samhengi, þá dugar álið úr þremur sprittkertum í eina drykkjardós og einungis þarf þúsund sprittkerti til að búa til reiðhjól. Átakið hófst 6. desember og lýkur því 31. janúar næstkomandi. Nánari upplýsingar um átakið má finna á vefsíðu þess.