Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins

Mynd: María H. Tryggvadóttir
Mynd: María H. Tryggvadóttir

Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins, AIDAsol, kom til Akureyrar í gær, sunnudaginn 14. apríl. Um borð voru 1993 farþegar og 629 manna áhöfn.

Heldur færri skip koma til Akureyrar í sumar en í fyrra. Nú stefnir í að um 200 skip komi til Akureyrar á árinu en þau voru 209 í fyrra sem er fækkun um tæp 5% milli ára. Búist er við að 10 skip komi til Hríseyjar (voru 11 í fyrra) og til Grímseyjar kemur 51 skip í ár en þau voru 42 í fyrra sem er aukning um rúm 20%.

Hægt er að skoða yfirlit yfir skipakomur á heimasíðu Hafnasamlagsins port.is.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan