Fundur í bæjarstjórn þriðjudaginn 3. desember

Menningarhúsið Hof
Menningarhúsið Hof

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 3. desember. Á dagskránni er meðal annars reglur um notkun á merki Akureyrarbæjar, svifryk og hálkuvarnir, starfsemi ungmennaráðs, og starfsemi og framkvæmdaáætlanir Norðurorku hf. og Hafnarsamsamlags Norðurlands bs.

Sjá dagskrá fundarins í heild sinni.

Fundurinn verður haldinn í Hömrum i Hofi og er öllum opinn. Sjónvarpað er frá fundinum daginn eftir, miðvikudaginn 4. desember kl. 14:00, á sjónvarpsstöðinni N4.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan