Fundur bæjarstjórnar fer fram með fjarfundakerfi að þessu sinni. Mynd eftir Auðunn Níelsson.
Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 20. október. Á dagskránni er meðal annars endurskoðun á reglum um sérstakan húsnæðisstuðning, breytingar á reglum um nefndarlaun, breytingar á aðalskipulagi Holtahverfis og breytingar á aðalskipulagi tjaldstæðisreitsins við Þórunnarstræti.
Sjá dagskrá fundarins í heild sinni.
Að þessu sinni verður um fjarfund að ræða vegna samkomutakmarkanna. Eftir sem áður verður hægt að fylgjast með fundinum í streymi og hægt að nálgast upptöku á vefsíðu bæjarins en upptökur eru aðgengilegar daginn eftir fund. Sjónvarpað er frá fundinum miðvikudaginn 21. október kl. 14:00, á sjónvarpsstöðinni N4.
Hér má finna upptökur og streymi frá bæjarstjórnarfundum.