Fundur í bæjarstjórn þriðjudaginn 20. nóvember

Mynd: María Helena Tryggvadóttir
Mynd: María Helena Tryggvadóttir

Bæjarstjórn Akureyrar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 20. nóvember. Á dagskránni verður meðal annars stefna- og framkvæmdaáætlun barnaverndarnefndar Eyjafjarðar 1018-2022, framkvæmdaleyfi fyrir ljósleiðara og samkeppnishæfni Akureyrarbæjar gagnvart öðrum sveitarfélögum á atvinnumarkaði.

Sjá dagskrá fundarins í heild sinni.

Fundurinn verður haldinn í Hömrum i Hofi og er öllum opinn. Sjónvarpað er frá fundinum daginn eftir, miðvikudaginn 21. nóvember kl. 14.00 á sjónvarpsstöðinni N4. Upptökur frá bæjarstjórnarfundum má nálgast hér.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan