Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 18. janúar. Á dagskránni eru meðal annars ýmis skipulagsmál og umfjöllun um safnastefnu Akureyrarbæjar.
Sjá dagskrá fundarins í heild sinni.
Að þessu sinni verður um fjarfund að ræða vegna samkomutakmarkana. Eftir sem áður verður hægt að fylgjast með fundinum í streymi og hægt að nálgast upptöku á vefsíðu bæjarins en upptökur eru aðgengilegar daginn eftir fund. Sjónvarpað er frá fundinum miðvikudaginn 19. janúar kl. 14:00, á sjónvarpsstöðinni N4.
Hér má finna upptökur og streymi frá bæjarstjórnarfundum.