Fundur bæjarstjórnar fer fram með fjarfundakerfi að þessu sinni. Mynd eftir Auðun Níelsson.
Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 1. desember. Á dagskránni er meðal annars fyrri umræða um fjárhagsáætlun bæjarins 2021-2024, breyting á aðalskipulagi stígakerfis Akureyrar, deiliskipulag á Hvannavallareit og stjórnkerfisbreytingar í velferðarþjónustu.
Sjá dagskrá fundarins í heild sinni.
Að þessu sinni verður um fjarfund að ræða vegna samkomutakmarkanna. Eftir sem áður verður hægt að fylgjast með fundinum í streymi og hægt að nálgast upptöku á vefsíðu bæjarins en upptökur eru aðgengilegar daginn eftir fund. Sjónvarpað er frá fundinum miðvikudaginn 2. desember kl. 14:00, á sjónvarpsstöðinni N4.
Hér má finna upptökur og streymi frá bæjarstjórnarfundum.