Fundur í bæjarstjórn 4. febrúar

Menningarhúsið Hof
Menningarhúsið Hof

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 4. febrúar. Á dagskránni er meðal annars: tillaga um lántöku Akureyrarbæjar hjá Lánasjóði sveitarfélaga, reglur um rafræna vöktun hjá Akureyrarbæ, tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hafnarstrætis 34 og tillaga að breytingu á aðalskipulagi sem felur í sér breytingu á stefnu varðandi heimildir fyrir rekstrarleyfisskylda gististarfsemi á íbúðarsvæðum.

Sjá dagskrá fundarins í heild sinni.

Fundurinn verður haldinn í Hömrum i Hofi og er öllum opinn. Sjónvarpað er frá fundinum daginn eftir, miðvikudaginn 5. febrúar kl. 14:00, á sjónvarpsstöðinni N4.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan