Fundur í bæjarstjórn 4. desember

Mynd: María Helena Tryggvadóttir
Mynd: María Helena Tryggvadóttir

Bæjarstjórn Akureyrar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 4. desember. Á dagskránni verður meðal annars deiluskipulagsbreytingar fyrir Njarðarnes 12, Geirþrúðarhaga 6 og Akureyrarflugvöll, göngu- og hjólastígur milli Lónsbakkahverfis og Akureyrar og staða Akureyrarbæjar sem sjávarútvegssveitarfélags.

Sjá dagskrá fundarins í heild sinni.

Fundurinn verður haldinn í Hömrum i Hofi og er öllum opinn. Sjónvarpað er frá fundinum daginn eftir, miðvikudaginn 5. desember kl. 14.00 á sjónvarpsstöðinni N4. Upptökur frá bæjarstjórnarfundum má nálgast hér.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan