Fundur í bæjarstjórn 2. júní

Fundurinn verður í Hofi - mynd: Auðunn Níelsson
Fundurinn verður í Hofi - mynd: Auðunn Níelsson

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 2. júní. Á dagskránni er meðal annars: kosning forseta og skrifara bæjarstjórnar til eins árs, kosning bæjarráðs til eins árs, breytt gjaldskrá fyrir bílastæðasjóð og tillögur að breytingum á deiliskipulagi Gilsbakkavegs 15, Jaðarsvallar og Eyrarvegs 31.

Sjá dagskrá fundarins í heild sinni.

Fundurinn verður haldinn í Hömrum i Hofi. Sjónvarpað er frá fundinum daginn eftir, miðvikudaginn 3. júní kl. 14:00, á sjónvarpsstöðinni N4.

Hér má finna upptökur og streymi frá bæjarstjórnarfundum.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan