„Frumkvæði“ fyrir þau sem vilja skapa eigið starf

Umsóknarfrestur í „Frumkvæði" fyrir árið 2022 rennur út 31. janúar næstkomandi. Frumkvæði er úrræði Vinnumálastofnunar fyrir þau sem eru á skrá og vilja skapa sér eigið starf og fara út í eigin rekstur.

Atvinnuleitendur eiga kost á fræðslu og leiðsögn til að kanna möguleika og tækifæri á að búa til eigið starf. Þátttakendur kanna þörf fyrir væntanlega þjónustu eða vörur sínar á markaði og gera viðskiptaáætlun um viðkomandi verkefni til að meta hvort verkefnið er raunhæft og hvað þurfi til svo unnt sé að búa til starf.

Nánari upplýsingar eru á vef Vinnumálastofnunar

Hægt er að senda fyrirspurnir á ráðgjafa Frumkvæðis í gegnum netfangið frumkvaedi@vmst.is

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan