Frístundastyrkur Akureyrarbæjar hefur þrefaldast frá árinu 2014

Mynd: Ragnar Hólm Ragnarsson.
Mynd: Ragnar Hólm Ragnarsson.

Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2018 samþykktu frístundaráð og bæjarstjórn að hækka frístundastyrk til niðurgreiðslu á æfinga- og þátttökugjöldum barna og unglinga á Akureyri. Hefur nú verið ákveðið að hækka styrkinn úr 20.000 kr. í 30.000 kr. frá og með 1. janúar 2018. Styrkurinn gildir fyrir börn á aldrinum 6-17 ára. Frístundastyrkurinn hefur nú þrefaldast frá árinu 2014 og hækkar um 50% milli ára (2017-2018).

Frá árinu 2006 hefur veitt styrk til allra barna og unglinga á Akureyri til niðurgreiðslu þátttökugjalda hjá íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsfélögum á Akureyri. Styrkurinn tekur gildi árið sem barnið verður 6 ára og fellur úr gildi árið sem unglingurinn verður 18 ára.

Til að nota frístundastyrkinn skal fara inn á heimasíðu þess íþrótta-, tómstunda- og/eða æskulýðsfélags þar sem skrá á barn. Þar er hlekkur inn á skráningarsíðu þar sem foreldrar skrá iðkendur. Í lok skráningar- og greiðsluferlisins geta foreldrar valið um að nota frístundastyrkinn frá Akureyrarbæ.

Íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsfélög(in) veita aðstoð og upplýsingar um skráningu, greiðslu og notkun frístundastyrks hjá hverju félagi fyrir sig.

Árið 2018 gildir styrkurinn fyrir börn fædd árið 2001 til og með 2012. Frístundastyrkurinn gildir frá 1. janúar til 31. desember ár hvert.

Upplýsingar er einnig að finna á www.akureyriaidi.is.

Nánari upplýsingar veitir Ellert Örn Erlingsson deildarstjóri íþróttamála, ellert@akureyri.is.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan