Frestur rennur út á miðnætti

Á miðnætti í dag, 26. febrúar, rennur út frestur til að sækja um styrki vegna þátttöku í Listasumri 2020.

Akureyrarstofa leitar að áhugaverðum og skemmtilegum hugmyndum að listasmiðjum og viðburðum fyrir Listasumar sem hefst 3. júlí og lýkur 31. júlí.

Í boði eru 23 styrkir að verðmæti 1.400.000 kr. samanlagt.

Styrkjum fylgir afnot af rými í Deiglunni, Listasafninu á Akureyri, Menningarhúsinu Hofi, Davíðshúsi, Minjasafninu á Akureyri eða Rósenborg ásamt aðgangi að kynningarefni Listasumars og tækjabúnaði í ákveðnum rýmum.

Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar um styrkina er að finna á heimasíðunni listasumar.is.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan