Framkvæmdir hefjast á mánudag í Móahverfi

Hér má sjá þann hluta Borgarbrautar sem þarf að loka fyrir umferð bíla, hjólandi og gangandi vegna f…
Hér má sjá þann hluta Borgarbrautar sem þarf að loka fyrir umferð bíla, hjólandi og gangandi vegna framkvæmdanna.

Framkvæmdir hefjast í Móahverfi mánudaginn 25. september og þar með verður nyrsta hluta Borgarbrautar lokað sem sjá má á meðfylgjandi mynd. Einnig mun koma til tímabundinna lokana á hluta Síðubrautar en það verður nánar auglýst síðar. Allri umferð vinnuvéla og þungra ökutækja verður beint um stofn- og tengibrautir til að lágmarka ónæði í íbúðahverfum.

Í undirbúningi er stofna póstlista þar sem fólk getur skráð netfang sitt til að fá vikulegar fréttir af framkvæmdum og gangi mála í hinu nýja Móahverfi. Nánar um það hér á heimasíðunni og á samfélagsmiðlum Akureyrarbæjar á allra næstu dögum. 

Móahverfi er nýtt íbúðahverfi í norðvesturhluta Akureyrar þar sem gert er ráð fyrir að byggðar verði allt að 1.100 íbúðir á næstu árum. 

Nánari upplýsingar um Móahverfi er að finna hér.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan