Framkvæmdir á Krókeyri

Framkvæmdir á Krókeyri eru komnar langt á leið og viljum við biðla til fólks að leggja ekki á Krókeyri þegar það er að koma fyrir hoppukastalann. Búið er að malbika götuna og byrjað er að helluleggja. Gatan er viðkvæm fyrir umferð þar sem mikið er um hellur í götunni og frágangi er ekki lokið. Gatan er einnig mjög þröng og lítið um pláss vegna fjölda vinnutækja á svæðinu.

Að því sögðu viljum við benda fólki á að nýta bílastæðin við Skautahöllina eða Mótorhjólasafnið á meðan á framkvæmdum stendur.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan