Fjórir skólar hlutu viðurkenningu UNICEF sem Réttindaskólar

Frá námskeiðinu í Brekkuskóla.
Frá námskeiðinu í Brekkuskóla.

Miðvikudaginn 15. nóvember var haldið í Brekkuskóla fjölmennt námskeið um skóla- og frístundastarf í þágu réttinda barna. Starfsfólk UNICEF skipulagði námskeiðið sem haldið var í samstarfi við fræðslu- og lýðheilsusvið Akureyrarbæjar. Námskeiðið var sérstaklega ætlað kennurum og starfsfólki í skólum og frístundastarfi Akureyrarbæjar. Námskeiðið var mjög vel sótt, en um 70 starfsmenn tóku þátt í deginum.

Í Réttindaskólum og -frístundastarfi sem viðurkennt er af UNICEF er Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna lagður til grundvallar í allri stefnumótun og starfsháttum skóla og frístundastarfs. Áherslan er á að starfsfólk skóla, frístundaheimila og félagsmiðstöðva þekki, skilji og virði réttindi barna. Þar læra börn um réttindi sín, rödd þeirra fær að heyrast og þau nýta hana til áhrifa og breytinga. Til þess að þetta verði að veruleika þarf að búa til öruggt umhverfi í skóla- og frístundastarfi sem styður við réttindi allra barna.

Dagurinn var afar vel nýttur og var fjallað um viðfangsefnið út frá mörgum sjónarhornum og fjölbreyttar leiðir kynntar til að starfa í anda Barnasáttmálans. Þátttakendur unnu m.a. í hópum við að rýna skóla- og frístundastarfið með gagnrýnum augum og huga að umbótum. Hópavinnan var svo kynnt fyrir öllum hópnum.

Daginn áður hlutu fjórir skólar á Akureyri viðurkenningu sem Réttindaskólar UNICEF, en það eru Leikskólinn Klappir, Leikskólinn Iðavöllur, Naustaskóli og loks Giljaskóli sem stóðst endurmat, en skólinn hlaut sína fyrstu viðurkenningu sem Réttindaskóli fyrir þremur árum.

Markmið Réttindaskóla er að byggja upp lýðræðislegt umhverfi með því að rækta með markvissum hætti þekkingu, leikni og viðhorf sem hjálpar börnum að verða gagnrýnir, virkir og hæfir þátttakendur í nútímasamfélagi.

Akureyrarbær þakkar starfsfólki UNICEF hjartanlega fyrir gott samstarf í þágu réttinda barna.

Smellið á myndirnar til að sjá stærri útgáfur og fletta á milli þeirra.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan