Eyþór Ingi söng til sigurs

VMA_Eythor_Songvak.Eyþór Ingi Gunnlaugsson úr Verkmenntaskólanum á Akureyri bar sigur úr býtum í Söngkeppni framhaldsskólanna sem fór fram í Íþróttahöllinni á Akureyri á laugardagskvöld og var sýnd í beinni útsendingu Sjónvarpsins. Hann söng lagið Perfect Stranger sem Deep Purple söng upphaflega.

Arnar Már Friðriksson úr Fjölbrautaskólanum við Ármúla hafnaði í 2. sæti og Nanna Bryndís Hilmarsdóttir úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja varð þriðja. Þá vann sögnhópurinn Friends 4 Ever úr Menntaskólanum við Hamrahlíð SMS-kosninguna þar sem fólk gat greitt bestu sviðsframkomunni atkvæði sitt.

Frétt af www.ruv.is.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan