Eyfirðingurinn í hnotskurn

Mynd: Ragnar Hólm Ragnarsson.
Mynd: Ragnar Hólm Ragnarsson.

RHA - Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri býður til málstofu 27. apríl kl. 16.15 í Háskólanum á Akureyri (Miðborg, M102). Kynntar verða niðurstöður könnunar sem nýlega fór fram á meðal íbúa á Eyjafjarðarsvæðinu. Á málstofunni fást m.a. svör við eftirfarandi spurningum:

  • Geta íbúar hugsað sér að næsti bíll þeirra verði rafbíll?
  • Hverjir eru duglegastir að sækja menningarviðburði í Hofi?
  • Eru íbúar Akureyrar hlynntir persónukosningum til bæjarstjórnar?
  • Hver er hugur íbúa smærri sveitarfélaga til sameiningar sveitarfélaga?
  • Hverjir eru líklegastir til að nefna gott veður í tengslum við búsetuskilyrðin á svæðinu?
  • Hvert er viðhorf íbúa til flokkunar á lífrænum úrgangi til endurvinnslu?
  • Telja íbúar að þeir séu í starfi sem hentar menntun þeirra?

Það er von RHA að líflegar og skemmtilegar umræður skapist um málefni sem skipta Eyfirðinga máli. Málstofan er öllum opin og er liður í 30 ára afmælisdagskrá HA. Léttar veitingar verða í boði að lokinni málstofu.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan