Evrópska nýtnivikan

Evrópska nýtnivikan verður haldin á Akureyri í fyrsta sinn 17.-25. nóvember nk. Nýtnivikan er samevrópsk og er ætlað að vekja fólk til vitundar um nauðsyn þess að draga úr magni úrgangs, m.a. með því að lengja líftíma hluta, samnýta og stuðla almennt að því að hlutir öðlist framhaldslíf frekar en að enda sem úrgangur.

Meðan á vikunni stendur verður í gangi verðlaunaleikur á Facebook þar sem fólk er hvatt til að deila með öðrum sniðugri hugmynd að betri nýtingu þess sem við höfum úr að spila. Veitt verða verðlaun í lok nýtnivikunnar.

Smelltu hér til að skoða dagskrá nýtnivikunnar á Akureyri.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan