Drög að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 og á Rammahluta aðalskipulags fyrir Oddeyri

Skipulagsráð Akureyrarbæjar kynnir, í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 sem nær til götureits sem afmarkast af Hjalteyrargötu í vestri, Kaldbaksgötu í austri, Gránufélagsgötu í norðri og Strandgötu í suðri.

Umrætt svæði er í dag að mestu skilgreint sem athafnasvæði fyrir utan lítið svæði sem nær til núverandi einbýlishúsalóðar sem liggur að Strandgötu. Þá er svæðið hluti af stærra þróunarsvæði þar sem gert er ráð fyrir mikilli endurnýjun bygginga og að nýjar byggingar verði almennt 3 til 4 hæðir, með íbúðum á efri hæðum.

Lýsing aðalskipulagsbreytingarinnar var kynnt með auglýsingu sem birtist 16. október 2019 og var þá gert ráð fyrir að á reitnum mætti byggja allt að fimm 6 til 11 hæða fjölbýlishús með atvinnustarfsemi á neðstu hæð.

Í þeirri tillögu sem nú er kynnt hefur verið sett það skilyrði að nýjar byggingar verði ekki hærri en 25 m.y.s. og að gólfkóti verði að lágmarki 2,2 m.y.s. Felur það í sér að heimilt verður að byggja hús sem verða 6 til 8 hæðir, allt eftir útfærslu. Áfram er gert ráð fyrir íbúðum á efri hæðum en á jarðhæð er sett skilyrði um að 25% rýmis að lágmarki, utan við bílgeymslu, verði fyrir verslunar- og þjónustustarfsemi.

Í ljósi aðstæðna verða útprentuð gögn ekki aðgengileg á 1. hæð í Ráðhúsinu eins og almennt er gert en hægt er að skoða gögnin hér:

Tillaga

Gefinn er kostur á að skila inn athugasemdum eða ábendingum til 27. maí n.k. og skal þeim skilað skriflega til skipulagssviðs Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagssvid@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.

Frekari upplýsingar eru veittar á skipulagssviði Akureyrarbæjar, Geislagötu 9. 3. hæð.

6. maí 2020
Sviðsstjóri skipulagssviðs

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan