Býrð þú í gömlu húsi?

Á Akureyri eru býsna mörg gömul og friðuð hús. Mynd: María Helena Tryggvadóttir
Á Akureyri eru býsna mörg gömul og friðuð hús. Mynd: María Helena Tryggvadóttir

Minjastofnun Íslands hefur auglýst eftir umsóknum um styrki úr húsafriðunarsjóði fyrir árið 2020. Síðasti dagur til að skila umsóknum er 1. desember næstkomandi og er gert ráð fyrir að úthlutun liggi fyrir eigi síðar en 15. mars 2020.

Hlutverk húsafriðunarsjóðs er að stuðla að varðveislu og viðhaldi friðlýstra og friðaðra húsa og mannvirkja. Sjóðurinn veitir styrki til viðhalds og endurbóta slíkra húsa, en einnig er heimilt að veita styrki vegna annarra mannvirkja sem hafa menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi.

Eigendur húsa og mannvirkja á Akureyri sem gætu fallið þarna undir eru hvattir til að sækja um styrk.

Nánari upplýsingar, eyðublöð vegna umsókna og reglur um úthlutun er að finna á heimasíðu Minjastofnunar.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan