Byggingarleyfisumsóknir liggja niðri um helgina

Nú um helgina 18.-20. nóvember verður ekki hægt að senda inn nýjar rafrænar byggingarleyfisumsóknir í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar.

Ástæðan er flutningur kerfa fasteignaskrár frá Þjóðskrá til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sem gerir það að verkum að tenging við fasteignaskrá virkar ekki.

Vonast er til að kerfin verði komin í lag strax eftir helgina og þá verði hægt að sækja um byggingarleyfi að nýju í gáttinni.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan