Áramótabrennum aflýst

Ákveðið hefur verið að halda ekki áramótabrennur á vegum Akureyrarbæjar að þessu sinni.

Ekki er talið skynsamlegt að halda fjöldasamkomur, nú þegar takmarkanir vegna sóttvarna miðast við 50 manns, faraldurinn er í vexti og mikil óvissa um þróunina næstu daga og vikur.

Þetta er í samræmi við ákvarðanir annarra sveitarfélaga, þar á meðal á höfuðborgarsvæðinu. Þrátt fyrir að áramótabrennur fari fram utandyra draga þær að sér fjölda fólks og mikilvægt að sveitarfélög hvetji ekki til hópamyndunar við þessar aðstæður.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan