Akureyri í fyrsta sæti

Mynd: María Tryggvadóttir
Mynd: María Tryggvadóttir

Veftímaritið Condé Nast Traveler’s kaus Akureyri sem áfangastað nr. 1 í flokki sem það kallar „minna þekktar hafnir“ eða „Where to Cruise in 2018: 8 Lesser-Known Ports".  Í greininni er sjónum beint að 8 höfnum víðsvegar um heiminn sem taka á móti sífellt fleiri skemmtiferðaskipum og lesendur hvattir til að heimsækja sem fyrst. Bent er á gífurlegan vöxt í komum lágjaldaflugfélaga til suðvesturhornsins, mikinn fjölda ferðamanna þar og tækifærið sem felst í að heimsækja Akureyri nú.

Nefnd eru  nokkur sérkenni og möguleikar  svæðisins;  einn lengsti fjörður landsins, miðnætursólin, fjöldi viðburða, Jarðböðin við Mývatn og  heimsókn í Grímsey og yfir heimskautsbauginn.

Skoða má greinina í heild sinni og þá átta staði sem valdir eru á síðu tímaritsins http://www.cntraveler.com

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan