Akureyrarbær er fyrsta barnvæna sveitarfélagið á Íslandi

Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, Ásmundur Einar Daðason, félags-og barnamála…
Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, Ásmundur Einar Daðason, félags-og barnamálaráðherra, Alfa Dröfn Jóannsdóttir, verkefnastjóri barnvæns sveitarfélags hjá Akureyrarbæ, Hildur Lilja Jónsdóttir, Ari Orrason, Rakel Alda Steinsdóttir og Embla Kristín Blöndal Jóhannsdóttir, fulltrúar ungmennaráðs Akureyrarbæjar og Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri. Mynd: UNICEF/Steindór

Akureyrarbær varð í dag fyrst sveitarfélaga á Íslandi til að hljóta viðurkenningu Barnvænna sveitarfélaga. Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, og Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, afhentu Ásthildi Sturludóttur, bæjarstjóra á Akureyri, og fulltrúum úr ungmennaráði bæjarins viðurkenninguna við hátíðlega athöfn.

Í viðurkenningunni felast þakkir til sveitarfélagsins fyrir að hafa unnið markvisst að því að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í stjórnsýslu og starfsemi bæjarins, með hagsmuni allra barna og ungmenna sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Mikill áhugi á verkefninu

Akureyrarbær er nú kominn í hóp valinna sveitarfélaga um allan heim, sem leggja Barnasáttmálann til grundvallar öllu sínu starfi. Viðurkenninguna hlýtur sveitarfélagið til þriggja ára og á það kost á að endurnýja hana að þeim tíma liðnum.

Með þátttöku í verkefninu hefur Akureyrarbær rutt brautina fyrir önnur sveitarfélög á Íslandi og tekið markvissan þátt í þróun verkefnisins á Íslandi frá árinu 2016. Mikill áhugi er meðal sveitarfélaga á að taka þátt í verkefninu, en samtals hefja níu þeirra þátttöku á þessu ári og tólf á því næsta.

Fjöldi nýrra verkefna

Aðgerðaáætlun Akureyrarbæjar vegna þátttöku í verkefninu var metnaðarfull og hefur sveitarfélagið innleitt fjölda nýrra verkefna í samstarfi við ungmennaráð sveitarfélagsins. Nokkur dæmi:

  • Bærinn hefur staðið fyrir árlegum stórþingum til að efla gagnvirkt samtal við börn og ungmenni.
  • Snjómokstur og strætósamgöngur bæjarins hafa verið endurskoðaðar í samráði við börn og ungmenni.
  • Sveitarfélagið hefur tekið upp verklag við hagsmunamat út frá réttindum barna við ákvarðanir og stefnumótun sem hefur áhrif á börn.
  • Rafræn handbók um tilkynningar til barnaverndar og samræmt verklag fyrir alla starfsmenn bæjarins hefur verið kynnt.
  • Tilkynningahnappur hefur verið settur upp svo börn geti sjálf tilkynnt um aðstæður sínar eða annarra til barnaverndarnefnda.

Þrátt fyrir viðurkenninguna er verkefninu þó hvergi nærri lokið. Nú þegar hefur verið byrjað á næsta hring í innleiðingarferli og verður haldið áfram að kortleggja og styrkja stöðu barna og ungmenna. Næsta aðgerðaáætlun er í undirbúningi. 

Smelltu hér fyrir frekari upplýsingar um verkefnið. Hér er líka hægt að skoða aðgerðaáætlun og lokaskýrslu Akureyrarbæjar. 

„Þessu verkefni lýkur aldrei“

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, segir að Akureyrarbær hafi einsett sér að vera í fararbroddi þegar kemur að réttindum og lífsgæðum barna. „Þess vegna erum við afar stolt af þessari viðurkenningu. Mig langar á þessum tímamótum að þakka okkar frábæra starfsfólki sem hefur unnið að verkefninu af miklum krafti á öllum stigum sveitarfélagsins og ungmennum sem hafa tekið þátt í vinnunni með okkur. Viðurkenningin gefur okkur aukinn kraft til að halda áfram og gera enn betur í því að búa börnum og ungmennum gott samfélag þar sem réttindi þeirra og rödd er virt. Þessu verkefni lýkur aldrei þótt fyrsti áfangi sé í höfn,“

Hildur Lilja Jónsdóttir er fulltrúi í ungmennaráði Akureyrarbæjar. „Ungmennaráð er sérstaklega stolt af aukinni þátttöku barna og ungmenna í sveitarfélaginu. Það er frábært að stjórnsýsla bæjarins sé farin að sjá og viðurkenna þau verðmæti sem felast í röddum barna. Þessi viðurkenning mun hafa áhrif á komandi kynslóðir og er bara byrjunin,“ segir Hildur Lilja. 

Markviss þátttaka barna býr til betri samfélög

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra hefur fylgst náið með innleiðingu þessa mikilvæga verkefnis. „Akureyrarbær og ungmennaráð Akureyrar hafa sýnt það og sannað að markviss þátttaka barna og ungmenna býr til betri samfélög fyrir alla. Með því að vera fyrsta sveitarfélagið til að innleiða Barnasáttmálann hafa þau rutt brautina fyrir réttindi barna hér á landi. Það er því einstaklega gleðilegt að tilkynna við þetta tilefni að á næstu dögum mun stefna um Barnvænt Ísland, markvissa innleiðingu Barnasáttmálans, verða aðgengileg í samráðsgátt stjórnvalda. Við vonum að sem flestir kynni sér stefnuna og aðstoði okkur við að útfæra hana og gera Ísland að besta stað í heimi fyrir börn.“

Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, segist stolt af Akureyringum og þeim áfanga sem er fagnað í dag. „Verkefnið Barnvæn sveitarfélög og innleiðing Barnasáttmálans hófst hér fyrir fjórum árum og það hefur verið einstakt að vinna að þróun verkefnisins með starfsfólki Akureyrarbæjar. Fyrir hönd UNICEF á Íslandi langar mig að óska Akureyrarbæ, starfsfólki og ungmennaráði bæjarins og auðvitað öllum börnum á Akureyri innilega til hamingju.“

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan