Gránufélagsgata 22 og 24 - Sala byggingarréttar

Akureyrarbær leitar eftir kauptilboðum í byggingarrétt lóðanna Gránufélagsgata 22 og 24 á Oddeyri.

Gránufélagsgata 22: um er að ræða 407,13 m² lóð þar sem byggja má einbýlishús á tveimur hæðum. Innan lóðarinnar er í dag steinsteypt smiðja frá 1915 sem nýtur verndar vegna aldurs. Er kvöð um endurbyggingu smiðjunnar og skal hafa samráð við Minjastofnun Íslands um útfærslu og breytingar. Smiðjan getur orðið hluti íbúðar eða nýst sem geymsla/hjólageymsla eða vinnustofa.

Gránufélagsgata 24: um er ræða 519,4 m² lóð þar sem byggja má tvær hæðir og ris. Val er um að byggja parhús með tveimur íbúðum eða fjölbýlishús með allt að fjórum íbúðum.

Tilboðum í lóðirnar skal skila rafrænt hér í gegnum útboðsvef Akureyrarbæjar fyrir kl. 12 fimmtudaginn 18. apríl 2024 og verða tilboð opnuð í Ráðhúsinu kl. 14 sama dag í viðurvist þeirra umsækjenda sem þess óska. Vinsamlegast athugið að nauðsynlegt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum þess sem kemur til með að undirrita umsókn fyrir hönd umsækjenda.

Hér má nálgast útboðsgögn fyrir Gránufélagsgötu 22

Hér má nálgast útboðsgögn fyrir Gránufélagsgötu 24

Hér má nálgast leiðbeiningar um hvernig skila megi inn rafrænu tilboði/umsókn.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan